Slefkleina

12.04.2007 00:48:45 / andri

Fuck this fucking fuck!

Þetta blogcentral dæmi eru rusl og þeir sem bera ábyrgð á þessu viðurstyggilega þroska og vitsmuna heftandi forriti mega fljúga á höfuðið. Megi þeir allir éta skít og drullu þangað til hún vellur út úr eyrunum á þeim.

 

Ég er fluttur á http://andrimelur.blogspot.com

 

Góðar stundir...

nema þú sért að fara kjósa vinstri græna þá máttu verða fyrir voðaskoti auminginn þinn.


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.04.2007 18:53:02 / andri

Glæstar vonir

Ég er að vona að nýliðurinn Bjarki dagsins sé að vekja lukku.

» 1 hafa sagt sína skoðun

10.04.2007 18:43:27 / andri

Vonbrigði

Hýru minni hef ég eytt
helst í tóma dellu.
Vita blankur veit ei neitt
vakna svo hjá mellu.


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.04.2007 16:08:00 / andri

Ónefnd færsla

Tíu ástæður fyrir því að ég er maðurinn...

1. Ég mun aldrei fá mér auðkennislykil og ef það þýðir að ég geti ekki notað heimabankann þá fokk it. Starfsmennirnir í útibúi Kb banka í Kringlunni fá þá bara þann heiður að vera í minni návist 2-3 í mánuði.

2. Crewið mitt er það harðasta á landinu!!!

-------Ásgeir "Suða" Long -------------------------------Andri "Hamar" Antonsson--

 

--------Gumbó "Byssa" Sveinsson--------------------------Steinar "Tattú"----------

 

3. Ég hef aldrei tapað í slagsmálum... Hinir hafa kannski unnið mig en ég hef aldrei tapað!

4. Aðeins einn maður sem vitað er um getur drukkið meira en ég án þess að drepast eða verða leiðinlegur.

Og það er enginn annar en Óskar "Wilde" ljósmyndari.

 

5. Ég lærði að drekka og reykja mjög snemma...

Ég er þarna til hægri og hef engan tíma fyrir myndatökur.

6. Ég þekki menn sem geta látið þig hverfa..


7. Ég þekki líka menn sem geta látið þig vilja fara bara af sjálfsdáðum.

 

8. Þegar aðrir halda til fjalla að veiða rjúpur fer ég niðrá Selfoss að skjóta hnakka.

Hnakka eins og þennan er best að skjóta bara í hnakkann

 

9. Ég umgengst ekki íþróttalúða, er alltof töff til þess.

 

10.

Er með menn sem sjá um að útrýma þeim sem eru mér ekki þóknanlegir. Nú bara nýlega fór þessi galvaska sveit manna og fótbrutu forsetafrúnna. Þeir munu klára verkið síðar. Einnig bera þei ábyrgð á "bílslysi" Steingríms J. um daginn sem og tíðum vinnuslysum á Kárahnjúkum.

Ég gæti haldið áfram endalaust en ég hef betri hluti að gera en að þóknast ykkur.

P.S. Skóvmöllerinn er víst lentur...

Góðar stundir.


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.03.2007 21:34:17 / andri

Helsta vandamál mitt þessa stundina...

Það er ljótt að segja það en akkurat þessa stundina finnst mér Stuðmenn besta hljómsveit í heimi.

 

Ætli þeir verði á Hróarskeldu?...

 

Smellir eins og Ottó vann í lottó eru óborganlegir.

,,Ottó vann í lottó, Mætti ég kynna einn mætan svein og meiri háttar sómamann. Sem hérna situr á grænni grein því gæfan virðirst límd við hann.

Ottó vann í lottó x4

Skál drekkum honum skál"

Ekki er textinn í Takt við tímann síðri.

,,Ekki fara burt, verið bara um kjurrt hér er komin sveitin sem allir hafa um spurt.
við erum vanir menn síst verri en í den, viðeigandi sviðsframkomu sem við kunnum enn. Úllendúllen, úllendúllen."

Það að ríma orðið burt við brenglað afstyrmi af boðhætti sagnarinnar kyrr í hvorkyni er bara snilld.

,,Þú slekkur á Nokia símanum og fylgist ei lengur með tímanum"

,,Tónum öll með Dúddanum nýja alíslenska Búddanum. Hann er að hugleiða í boði Flugleiða"

,,Ég vann engin spjöll á mærinni, ég var bara í vinnunni"

 

Svo lenti ég í því furðulega atviki þegar ég var að leita að myndum af Eggerti Þorleifssyni til að setja hér inn með textanum þá var ég alltíeinu kominn inná síðu Dýralæknafélags Íslands. Það gerði mig svoldið hissa en ég lét þetta leiðindaratvik ekki á mig fá og fór að skoða síðuna aðeins og þá rakst ég á "Siðareglur Dýralæknafélag Íslands" eða "Codex ethicus" eins og það heitir víst á latínu. Þar fann ég nokkra gullmola...

Smá brot úr fyrstu grein. ,,........ Sjálfur skal dýralæknir vera til fyrirmyndar í kringum dýr".

Afhverju finnst mér þetta orðað eins og dýralæknirinn eigi að vera fyrirmynd fyrir dýrin???

Fimmta grein. ,,Dýralæknir skal gæta þagmælsku gagnvart skjólstæðingum sínum nema velferð dýra eða almannahagsmunir séu í húfi"

Ég held að dýrin séu ekki að skipta sér af því hvort einhver vita hvað ami að þeim, allavega sé ég ekki fyrir mér fyrirsögnina í blaðinu ,,Snati kærir dýralækninn sinn fyrir brot á trúnaði"

Snati hefur kært atvikið til landlæknis og fengið sér lögmann

En yfir í eitthvað annað því Snata er víst ílla við að hann sé ræddur á opinberum vettvangi.

Nokkrar staðreyndir:

Ég hef núna undanfarnar vikur staðið í þeirri meiningu að ég vissi hver asnalegasta síða Íslands væri. Nú rétt í þessu fékk ég sannanir fyrir því að ég hafði rangt fyrir mér.

Ég stóð lengi í þeirri meiningu að versta internetssíða Íslands væri Þessi!

En nei fávitinn ég, rétt í þessu fann ég síðu sem er enn leiðinlegri og heimskulegri og er það afrek útaf fyrir sig. Hér er Hún!

En afhverju er þessi síða verst. Hvaða eiginleika verður vefsíða að hafa til að geta staðið þarna upp með þeim bestu (þá eiginlega verstu) og skotið öllum þeim ósóma sem til er á netinu ref fyrir rass. Þessu mun ég nú leitast við að svara á eins fordómalausan og vísindalegan hátt og ég get. Þeir sem mig þekkja vita að hér á eftir kemur fullt af fordómum og óvísindalegum staðhæfingum sem eiga sér litla stoð í raunveruleikanum.

Til að byrja með blasti þessi mynd við mér á forsíðunni þegar ég fyrst staulaðist þarna inn (the humanity)

Strax er síðan búinn að leggja línuna fyrir það hvaða markhóp hún er að miða á. Það er hinn eftirsótti "Ég hef aldrei notað hjálm á ævinni" markhópurinn.

Síðan er samt fersk í útliti en það er taugaveikluð æðakolla líka. Helstu flokkar síðunnar eru Fréttir, Fólkið, Tónlist, Kvikmyndir, Í dag og svo síðast en ekki síðst Panama sem eru svona creditlistien það er mér óskiljanlegt að einhver skildi vilja leggja nafn sitt við svona.

Þegar ég svo clickaði á flokkinn fréttir var mér tjáð hástöfum að Kylie Monogue væri byrjuð með breskum hnefaleikakappa. Nú þar strax fékk ég hausverk en ef maður stundar rannsóknarblaðamennsku þá verður maður stundum að "fórna sér". Í þessari frétt komu fram eftirtaldar setningar "franski folinn, vinir í nokkur ár, nánir vinir og 100% til staðar" Mér varð nátturulega óglatt og þurfti að taka mér smástund til að jafna mig.

Aðrar helstu fréttir voru... Turtles vinsælastir vestanhafs (allir vita að aðeins fávitar sem vilja hljóma gáfulega nota orðið vestanhafs), Elton John: stöndum saman gegn fordómaseggjunum og Mel C stendur ekki í vegi fyrir endurkomu Spice girls.

Þarna fékk ég nóg enda þurfti ekki meira til. Panama.is er lágkúra í sinni verstu mynd og það hlítur bara eitthvað að vera í hegningarlögunum sem bannar þessu fólki að skrumskræla tilveruna með þessum hætti.

VÉR MÓTMÆLUM ALLIR eins og einhver sagði.

 

 

Nú nenni ég ekki að skrifa lengur en vill enda þetta á því að birta mynd af mér ef svo ólíklega vill til að einhver sem vinnur þar skildi lesa þetta og vilja vita hver ég er til að kæra mig eða líkamsmeiða.

Fávitar!

 

 

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.03.2007 20:54:42 / andri

Dansa, hvað er betra en dansa...

Góðan daginn.

Jæja, ég var niðrí bæ seinustu helgi. Eins og þeir sem þekkja mig vita er það ákaflega sjaldgæft og því hef ég lært að njóta virkilega þeirra fáu skipta sem ég læt sjá mig þar.

Annaðhvort er ég að verða gamall eða eitthvað rútufyrirtæki er byrjað með ferðir fyrir grunnskólanema niðrí bæ. En það er ekki það sem ég ætlaði að röfla um heldur þá sem eru að reyna við þessar ungu stúlkur niðrí bæ. Og þá er ég að meina fullorðnir menn á eftir 16,17 og átján ára stelpum. Ég er með kenningu.....

GAURAR SEM FÍLA ÓREYNDAR STELPUR OG HREINAR MEYJAR ERU LÉLEGIR Í RÚMINU.

Það að vilja óreyndar stelpur er ekkert annað en sjálfsöryggisleysi meðal karlmanna. Þær eru lélegar í rúminu, vita ekkert hvað þær eru að gera og athöfnin er mjög óþægileg og aumkunarverð fyrir alla sem koma að máli. Nema ef maður væri dvergur. En óreyndar stelpur eru ekki fyrir dverga, eða leika sér eitthvað. Þær vilja bara liggja kyrrar eins og kartöflusekkur. Í alvöru ég myndi frekar ríða svona blásinni upp dúkku. Þær fara allavega niðrá mann.

Strákar með lítil typpi reyna allt sem þeir geta til að sofa hjá stelpum sem hafa ekki sofið hjá áður. Þá hafa þær engan samanburð og gera ekki grín að þeim. Sumir afsaka sig með því að líkja sér við einhverja landkönnuði sem vilja bara nýjar lendur, ómengaðar af öðrum "landkönnuðum". Við þá vil ég bara segja, þið megið eiga ykkar kartöflusekki.

Óreyndar stelpur eru passívar og stundum bara hræddar og það eyðileggur alla stemningu. Að sofa hjá hreinni mey er svoldið eins og að spila biljarð með stelpu sem hefur aldrei spilað áður. Hún bara eitthvað sveiflar "kjuðanum" asnalega, afsakar sig og reynir að vera sæt. Veit ekkert hvað á að gera við "kúlurnar", kvartar ef hún verður undir og vonar að "leikurinn" sé búinn sem fyrst.

 

En hvað er ég að nöldra það hlustar aldrei neinn á mig. Það sem neytendur vilja í dag er eitthvað einfalt sem reynir ekkert á neina hugsun og ekkert vesen. Og hvað er betra fyrir þessa ameríkusmitssinnuðufriendsdýrkandisirkushorfandiauglýsingafórnarlömb en myndir....

Einn jager í magic fyrir þann sem er fyrstur að fatta hver er þarna hægra meginn á leiðinni upp einhverja "fjallabaksleið".

 

 

Góðar stundir...


» 10 hafa sagt sína skoðun

19.03.2007 23:46:27 / andri

Í tilefni mánudags

 

Gunnar Már Jakobsson djammaði vel um helgina eins og sést á myndinni hér fyrir ofan.

 

 

Daníel Páll Jóhannsson var hinsvegar að vesenast í einhverjum druslum. Hvar finnur hann þetta pakk?

 

 

Ég hinsvegar var að byrja í nýrri vinnu..........

 

Kveðja úr brúnni...

Capt. Sturluson


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.03.2007 00:23:14 / andri

Ha.. já

Kona nokkur var að versla í Bónus-verslun í hverfinu.

Hún var búin að setja 3 lítra af létt mjólk í körfuna ásamt 1 eggjabakka með 10 eggjum, 1/2 lítra af appelsínusafa, 1 höfuð kínakál, kaffipakka og bréfi af beikoni. Ölvaður maður fyrir aftan hana í röðinni fylgdist með þegar hún raðaði þessum hlutum á færibandið við kassann. Þegar kassadaman tók til að lesa strikamerkin inn sagði drukkni maðurinn hæglátlega: "Þú ert örugglega einhleyp"!

Konunni gramdist þessi ummæli drukkna mannsins en jafnframt fannst henni athugasemdin skondin þar sem það var vissulega rétt, hún var einhleyp. Hún virti fyrir sér þessa sex hluti á bandinu og furðaði sig á hvernig í ósköpunum hann gæti komið með svona fullyrðingu af þessum ósköp venjulegu innkaupum. Forvitnin varð henni um megn svo hún sagði: " Þetta er vissulega hárrétt hjá þér. Hvernig í ósköpunum geturðu séð það??" . . .

Drukkni maðurinn svaraði: " Af því að þú ert ljót!"


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.03.2007 23:24:16 / andri

Somebody kill me please

 

Í dag var furðulegur dagur. Ég var mace´aður í skólanum. Það er það versta sem hefur komið fyrir mig. Það var svona æfing og allur bekkurinn var úðaður í klessu.

Ég hef aldrei grenjað jafn mikið. Svo losnaði allt úr nefinu á mér og ég var allur útgrátinn, rennblautur og þakinn hori. Mjög gaman.

´

Ég byrjaði svaka harður, hélt þetta væri ekkert mál.

Mér var hætt að standa á sama þegar menn fóru að bera út fötur, fylla af vatni og segja manni að muna að alls ekki nudda augun.

Þetta helvíti dregur fjóra metra og það þarf bara að halda takkanum niðri í svona sekúndu til að fá einhvern til að vilja deyja.

Hér eru liðnar svona tvær sekúndur frá því ég var mace´aður og eins og sést er ég að taka því eins og karlmaður...... Augun á mér voru að brenna og mér sveið svo mikið í andlitið. Á myndbandinu sem var tekið heyrist ég öskra ,,AHAAAAAAHH ÞAÐ BRENNUR" mjög karlmannlegri röddu.

Hér er ég búinn að hlaupa út og er að grátbiðja almættið um vægð.

Hér er ég kominn út í heimspekilegar pælingar um það afhverju guð hati mig.

Ég vil taka það fram að ég er ekki að grenja á þessari mynd heldur að bíða eftir að fá heilablóðfall.

Hérna sést ég og nýji besti vinur minn. Úðabrúsi sem ég kýs að kalla "Bjargvættinn". Einnig í hægra horninu sést í Sævar bekkjarbróðir minn að dunda sér við að fylla nýja fötu af vatni. Ég er þarna í rólegheitunum að tjá honum að ef hann drífi sig ekki mun ég sparka í hausinn á honum.

Ég mun aldrei nota svona helvíti á nokkurn mann. Þetta er stanslaus sársauki í 30-45 mínotur.

Svo þegar við vorum farnir að sjá almennilega hlupum við í sturturnar og þá komst ég að því að kalt vatn er gott við gasinu en heitt vatn er eins og sýra. Við skólafélagarnir láum svo í hnipri á gólfinu í sturtunum, naktir, grenjandi og brenndir. Við minntum svolítið á fórnarlömb helfararinnar, sturturnar voru eins og gasklefinn og við þarna óvinnufærir gyðingar sem vildu vera einhverstaðar annarstaðar.

Vonandi höfðu þið gaman af.

Étið skít...

P.S. Ég læt hér fylgja með mynd af snúð sem ég gat ekki klárað í dag vegna brunatilfinningar í hálsinum. Á disknum sést líka krumpað blað sem mér fannst vera táknrænt fyrir líðan mína þá stundina.


» 5 hafa sagt sína skoðun

08.03.2007 16:56:02 / andri

Ég þakka guði fyrir að heita ekki Hannes...

Vá það er allt í einu kominn fimmtudagur, það er næstum því föstudagur og því ber að fagna. Ég er að spá í að fara að skipuleggja helgarnar betur í von um að minnka líkur á miklum fjárútlátum og minnisleysi. Hér er tillaga að föstudeginum...

 

07:00 Vakna og gera sig kláran fyrir skólann.

(Geta hestar gert sig kláran? Og þegar hann væri búinn að því væri hann þá klár klár? Á maður einhverntíman eftir að láta út úr sér setninguna "Klári klárinn er klár??? Ólíklega)

12:15 Mæta á samkomu á NK Kaffi í kringlunni og gera góðlátlegt grín að Guðmundi Sveinssyni.

16:00 Fara heim í heiðardalinn og fá sér saft. Senda dónaleg myndskilaboð úr símanum hennar Ingu þegar hún sér ekki til. Jafnvel festa eitthvað í loftið með límbandi.

16:30 Leggja sig fyrir átök næturinnar.

17:25 Smá hlé, klósettferð og aftur lagst til hvílu.

20:00 Fyrsti bjórinn opnaður

23:30 Hefbundin dagskrá hefst niðrí bæ

 

Skráning á fyllirí með mér annaðkvöld er hafin. Áhugasamir eru beðnir um að skrá sig með SMS í símann 6150150. Gott væri að hafa skráningarformið staðlað. Semsagt sendið skilaboðin..

"Ég (nafn viðkomandi) skrái mig hér með á fyllirí með Andra föstd. Hlakka til að hitta hann"

Ég mun svo hringja sjálfur í þetta símanúmer sem er hjá Guðmundi Sveinssyni og fá hjá honum upplýsingar um hverjir skráðu sig.

Mæting er semsagt klukkan átta

Sjáumst hress og kát og full og fersk.


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.03.2007 16:36:35 / andri

Til þeirra er málið varðar!

Þetta kemur ykkur ekki við!

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.03.2007 00:53:56 / andri

Fróðleiksmoli

Vissuð þið að orðið menntun er dregið af því að vera meðal manna. Þ.a.s. menn þurftu að hafa umgangast fólk til að vera menntaðir.

En þá komum við að andstæðunni. Menn sem voru alltaf heima á bænum og umgengust ekkert fólk voru heimskir. Já orðið heimskur kemur af því að hanga heima hjá sér. Eins og segir í orðtiltækinu ,,heimskur er heimakær maður"

Þá komum við að opinberunni.

 

Nú getið þið hringt í vini ykkar næsta föstudagskvöld og sagt...

Ætlarðu að kíkja eitthvað út með mér í kvöld eða ertu bara heimskur....

 

Góðar stundir
 


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.02.2007 22:07:05 / andri

Ónefnd færsla

Það er algengur misskilningur að karlmenn faðmist ekki eða að minnsta kosti ekki tilneyddir. Þetta er ekki satt. Menn faðmast reglulega, sérstaklega þegar þeir eru að verða úti í frjósandi gaddi og eru aðeins örskamma stund frá því að frjósa til bana.

Menn faðmast undir öðrum kringustæðum líka, t.d. ef þeir eru hommar. Stundum líka þeir sem eru tvíkynhneigðir en aðeins þegar það eru engar konur nálægt.

Þegar sá fáheyrði atburður á sér stað að gagnkynhneigðir karlmenn faðmast er nánast alltaf ákveðin athöfn sem fer fram sem ég kýs að kalla "handabands þreyfingin". Það er þegar tveir fullfrískir karlmenn hittast sem telja sig þekkja hvorn annan nógu vel fyrir faðmlag en eru ekki vissir hvort hinn muni taka þátt. Þetta er athöfnin þegar maður teygir handleggina út með síðunum og rétt áður en faðmlagið á að eiga sér stað grípur maður í höndina á viðkomandi og heilsar honum með handabandi. Þetta er mjög vandræðaleg athöfn mjög svipuð þeim dansi sem á sér stað þegar maður mætir bláókunnugum manni á gangstétt og báðir eru ekki vissir hvort þeir eigi að fara vinstra megin við hann.

Það er miklu verra að vera gerandinn í faðmlagi milli karlmana en "viðtakandinn". Það er nefnilega betra að geta hafnað faðmlaginu en að faðmlagi manns sé hafnað. Svo er það líka þannig að suma karlmenn faðmar maður ekki. Maður hefur kannski þekkt þá árum saman, jafnvel farið einu sinni til tvisvar í sleik við þá á fylliríi. Það eru þeir "ófaðmanlegu".

Hér eru svo nokkrar reglur sem hafa ber í huga þegar tveir karlmenn ætla að faðmast.

1. Ekki knúsast of lengi. Milli karlmanns og karlmanns er hámarkstíminn þrjár sekúndur. Eitthvað lengur en það og faðmlagið er orðið kynferðislegt. Eina undantekningin á þessari reglu er þegar karlmaður deyr og ég meina bókstaflega deyr í fanginu á þér. Það má semsagt faðma nýdauðan karlmann þann tíma sem tekur að leggja hann rólega niður á gangstéttina.

2. Ekki hreyfa hendurnar upp og niður. Hafið hendurnar alveg kjurrar og nefið á manni á að vísa í burt frá hári þess sem faðmaður er.

3. Fitubollur eiga það til að kreista mann of fast eða lyfta manni af jörðinni. Það er alveg bannað því það lítur svoldið út eins og viðkomandi ætli að taka mann með valdi þarna beint á stofugólfinu.

4. Nú ef einhverra hluta vegna faðmlagið verði eitthvað skrýtið eða hommalegt þá á maður að klappa hinum tvisvar á bakið. Það er dulmál og táknar bæði eistun. Það segir hinum "Mér þykir vænt um þig en ekki á neinn samkynhneigðan hátt".

5. Mér finnst ég varla þurfa að árétta að aldrei má maður faðma annan karlmann aftanfrá. Nema þú sért að sofa hjá honum.

 

Vona að þetta hafi verið gagnlegt.


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Myndasöfn
Bjarki dagsins
""
R�?�?�?�??�?�??�?¡�?�?�?�??�?�??�?°leggingar Andra

""

 Ekki sofa með fullan munninn

Textabox
var u=69322; var vsbl=1; document.write('""'); <a href="http://hitslog.com/"><img border=0 src="http://h2.hitslog.com/img.php?u=69322" width=88 height=31 alt="myspace profile tracker"></a>
Fólk sem ég þekki ekki en finnst áhugavert